Umsögn Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi um frumvarp til laga um breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, 464. mál, próf í íslensku o.fl:

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi sendir eftirfarandi athugasemd varðandi ákvæði frumvarpsins er varða íslensku kunnáttu umsækjanda um íslenskan ríkisborgararétt:


3. tl. c-liðar 5. gr:
Hér er mælt fyrir um að umsækjandi um ríkisborgararétt skuli hafa staðist próf í íslensku samkvæmt kröfum sem dómsmálaráðherra setur í reglugerð. Þar segir enn fremur að í reglugerð skuli jafnframt kveðið á um undanþágur frá þessu skilyrði fyrir þá sem telja verði ósanngjarnt að gera þessar kröfur til.

Í athugasemdum með framangreindu ákvæði segir að einkum hljóti að koma til greina að undanþiggja þá skilyrði um íslenskukunnáttu, sem flust hafi til landsins eftir miðjan aldur auk þeirra sem búi við einhverja fötlun sem geri þessa kröfu óraunhæfa. Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi tekur undir þetta.

Samtök kvenna af erlendum uppruna telja vænlegra að í stað þess að umsækjendum verði gert að standast próf í íslensku þá eigi þeir fremur að uppfylla skilyrði um námskeiðssókn og á við um búsetuleyfi samkvæmt útlendingalögum. Margrar erlendar konur sem hér búa eru mjög einangraðar, fara jafnvel lítið úr húsi og læra aldrei íslensku. Væri íslenskunám skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar er þess frekar að vænta að konurnar fái færi á að læra íslensku og afla sér þekkingar um réttindi og skyldur í íslensku samfélagi. Þetta fyrirkomulag mun gefa þein tækifæri að rjúfa einangrun sína og leita sér aðstoðar ef þarf.

Samtök kvenna af erlendum uppruna fagna frestun á gildistöku ákvæðisins til 1. janúar 2009, svo færi gefist til að byggja upp íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Það verður nauðsýnlegt að fyrir gildistöku ákvæðisins verði gengið úr skugga um að framboði, gæðum og aðgengi að íslenskukennslu sé þannig háttað að gera megi kröfur um tiltekna íslenskuþekkingu við veitingu ríkisborgararéttar.

Nýjustu fréttir
Fulltrúar fjölda...
Fréttatilkynning 16. ágúst 2010 Fulltrúar fjölda kvennasamtaka...
02.08.10
Taktu þátt 30+...
Samtök kvenna af erlendum uppruna luku sínu öðru „Taktu...
Reykjavík Safarí...
Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og...