Umsögn um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, 535. mál
Sent til félags- og tryggingamálanefndar Alþingis, 15. maí 2008
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð 24. október 2003. Hlutverk Samtakana er að sameina, takast á við og ljá hagsmuna- og áhugamálum þeirra rödd. Samtök eru opin öllum konum af erlendum uppruna búsettum á Íslandi. Félagsmenn greiða ekki félagsgjöld en u.þ.b. 130 konur eru á póstlista og fá reglulegar upplýsingar um starfsemi okkar. Markmið samtakana er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins.
Í stjórn samtaka sitja sjö konur. Stjórnarkonur Samtakana hafa frá stofnun tekið virkan þátt í umræðu um innflytjendamál á Íslandi og unnið ötullega að hugarfarsbreytingu þjóðarinnar gagnvart fólki sem setjast hér að, m.a. með því að benda á margbreytileika í innflytjendasamfélagi. Fyrir okkar störf höfum við fengið margar viðurkenningar, t.d. viðurkenningu á Degi íslenskrar tungu 2007.
Samtökin lýsa ánægju sinni að málefni innflytjenda séu rædd á Alþingi og fögnum þingsályktunartillögunni félagsmálaráðherra. Þar sem tvær stjórnarkonur Samtaka eiga sæti í innflytjendaráði er engin þörf á að umsögnin okkar fjalli um einstaka þætti þingsályktunartillögunnar.
Við viljum benda á mikilvægi þess að stjórnvöld efli og styðji starf grasrótarinnar, þ.e.a.s. frjálsra félagasamtaka og hagsmunaaðila er starfa að innflytjendamálum, ekki síst félög innflytjenda. Það er mjög mikilvægt að raddir fólks sem sest hafa að á Íslandi og sýnir viðleitni að gera sitt að mörkum að byggja eftirsóknarvert samfélag heyrast í stefnumótun og vinnu í innflytjendamálum.