Menntun
Samtökin hafa frá stofnun beitt sér ötullega fyrir greiðum aðgangi að námi í íslensku fyrir útlendinga og eins fyrir því að þjálfun og menntun kvenna af erlendu þjóðerni verði viðurkennd þannig að þeim verði fært að nýta sérfræðiþekkingu sína og geti þannig öðlast meiri sjálfsvirðingu og sterkari sjálfsmynd
.
• Við viljum að þjálfun og menntun kvenna af erlendu þjóðerni verði viðurkennd þannig að þeim verði fært að nýta sérþekkingu sína og geti þannig öðlast meiri sjálfsvirðingu og sterkari sjálfsmynd
• Við hvetjum og styðjum konur af erlendum uppruna til að afla sér frekari menntunar
• Við höldum tölvunámskeið fyrir konur af erlendum uppruna
• Við erum virkar í umræðu um íslensku, íslenskukennsluna og menntun erlendra starfsmanna
Viðurkenning á Degi íslenskrar tungu
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir veitti Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi viðurkenningu á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2007:
Viðurkenning á degi íslenskrar tungu