Viðurkenning á Degi íslenskrar tungu

Á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2007 veitti menntamálaráðherra Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi viðurkenningu með eftirfarandi rökstuðningi:

 „Í umræðum um framtíð íslenskrar tungu og stöðu íslenskunnar gagnvart nýjum Íslendingum skiptir viðhorf aðfluttra málnotenda máli. Samtök kvenna af erlendum uppruna hafa frá stofnun tekið skýra afstöðu til tungumálsins sem hér er talað, og álitið það bæði skyldu og réttindi útlendinga sem hér hefja búskap að ná tökum á íslenskri tungu. ...
Samtökin hafa bent á að íslenskukunnátta sé lykilatriði ef aðfluttar konur, og aðrir útlendingar, vilja þekkja lagalegan og samfélagslegan rétt sinn – og til þess að sporna gegn einangrun. Þá árétta liðskonur samtakanna að útlendingar sem taka alvarlega þá áskorun að læra íslensku séu bandamenn íslenskunnar, en standi ekki í vegi fyrir viðgangi hennar. Útlendingar eigi því ekki að þurfa að fyrirverða sig fyrir að tala íslensku með hreim, heldur sé hvatning rétta viðmótið.
Fulltrúar samtakanna, konur frá ólíkum löndum heims, hafa á síðustu misserum vakið eftirtekt með skeleggri þátttöku sinni í þjóðmálaumræðu á breiðum grundvelli – á íslensku. Þær hafa þannig sýnt í verki að íslenskan getur verið tæki til þess að tjá fleiri sjónarhorn en hið séríslenska.“
Nýjustu fréttir
Fulltrúar fjölda...
Fréttatilkynning 16. ágúst 2010 Fulltrúar fjölda kvennasamtaka...
02.08.10
Taktu þátt 30+...
Samtök kvenna af erlendum uppruna luku sínu öðru „Taktu...
Reykjavík Safarí...
Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og...