Samarbeta Jämt

Samarbeta Jämt er verkefni sem skipulagt er í Malmö/Svíþjóð hjá IKF (Samtök alþjóðlegra kvenna í Malmö) og fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni. Á meðal samtaka sem taka þátt í þessu verkefni eru samtök erlendra kvenna í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Danmörku og Íslandi. Samarbeta er bæði samkomustaður fyrir konur af erlendum uppruna og þekkingargrunnur. Markmið þess eru m.a.

• Að auka jafnrétti og aðlögun
• Að auka umfang kvennahreyfinga
• Að auka þátttöku kvenna í þróun samfélagsins

Tengslanetið Samarbeta Jämt hjálpar samtökum erlendra kvenna að vinna saman og styðja hvert annað í starfi sínu. Til þess að ná þessu markmiði hefur Samarbeta Jämt fjármagnað tölvunámskeið fyrir konur af erlendum uppruna á öllum Norðurlöndum. Á Íslandi fengum við tækifæri til að halda tölvunámskeið fyrir konur af pólskum og tælenskum uppruna á Ísafirði, Hafnarfirði. Akureyri og Reykjavík. Námskeið voru haldin annaðhvort á móðurmáli hópsins eða á íslensku.

Nýjustu fréttir
Fulltrúar fjölda...
Fréttatilkynning 16. ágúst 2010 Fulltrúar fjölda kvennasamtaka...
02.08.10
Taktu þátt 30+...
Samtök kvenna af erlendum uppruna luku sínu öðru „Taktu...
Reykjavík Safarí...
Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og...