Allar heimsins konur Allar heimsins konur eru hópur sem samanstendur af konum frá ýmsum stofnunum og samtökum og vinnur að því að deila upplýsingum og þekkingu á stöðu erlendra kvenna í íslensku samfélagi og að auka gagnkvæma aðlögun. Í hópnum sitja m.a. fulltrúar frá Stigamótum, Kvennaathvarfinu, Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Alþjóðahúsinu, Landspítalanum, Mannréttindaskrifstofunni og verkalyðshreyfingunni. Fulltrúi Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi er Sabine Leskopf. Markmið hópsins eru • að ná til erlendra kvenna og tryggja þátttöku þeirra í íslensku samfélagi á eigin forsendum. • að byggja upp og styrkja upplýsinga- og fræðslunet varðandi réttindi og skyldur innflytjenda á Íslandi
|

