16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi Samtökin taka þátt í árlegri herferð 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Á hverju ári, frá 25. nóvember til 10. desember stendur fjöldi aðila og samtaka, sem láta sig málefnið varða, fyrir margvíslegum viðburðum í því augnamiði að vekja athygli almennings á orsökum og afleiðingum kynbundins ofbeldis. Nánar um herferð á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu Íslands, http://mannrettindi.is/servefir/16dagar 2007 Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi stóðu fyrir fyrirlestri um baráttu gegn sæmdarglæpum á Nordurlöndum. Gestur samtakanna var Fatma Mahmoud frá 29. nóvember var í Hinu Húsinu sýnd mynd "The Price of Life" sem fjallar um mannsal í Króatíu.
2008 Þriðjudaginn, 2. desember stóðu Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi fyrir bókakvöldi á Kaffi Kultura, Hverfisgötu 18. Ragnhildur Sverrisdóttir, blaðakona kynnti bók sina „Velkomin til Íslands - sagan af Sri Rahmawati“. Á eftir voru umræður með þátttöku rithöfundar, Margrétar Steinarsdóttur, lögfræðings Alþjóðahúss og Stefáns Eírikssonar, lögreglustjóra.
|

