Kvennaráðgjöf

Ef þú hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi
Ef þú þekkir einhvern sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi
Ef þú ert að leita að ráðgjöf og upplýsingum varðandi kynferðisofbeldi
Ef þú hefur starfað eða starfar í kynlífsiðnaðinum

Kvennaathvarf: Athvarf, fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna.
Athvarfið er einnig fyrir konur sem hafa orðið fyrir nauðgun. Kvennaathvarf biður líka símaráðgjöf og sjálfshjálparhópar.

Kvennaráðgjöfin býður ókeypis félagslega og lagalega ráðgjöf fyrir konur á þriðjudögum kl. 20–22 og fimmtudögum kl. 14–16. Túngötu 14 101 Reykjavík, sími: (+354) 552-1500
Neyðarkort fyrir konur sem sæta ofbeldi
Við hjálpum - kort fyrir konur sem sæta ofbeldi og þurfa að leita sér hjálpar. Upplýsingar á kortinu, sem er á stærð við nafnspjald, eru á fimm tungumálum, þ.e. íslensku, ensku, pólsku, rússnesku og taílensku. Fyrirsögn kortsins er „Við hjálpum“ og þar eru birt símanúmer Neyðarlínu, Kvennaathvarfsins, Stígamóta, Neyðarmóttöku vegna nauðgunar og Hjálparsíma Rauða kross Íslands.
Neyðarkort í rafrænu formi