Lög Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

1. gr.
Samtökin heita Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Samtökin starfa á landsvísu. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Samtök kvenna af erlendum uppruna vinnur samkvæmt stefnuskrá, sem er fylgirit með lögum þessum.
3. gr.
Meðlimir samtakanna geta orðið erlendar konur, búsetar á Íslandi, óhað ríkisfangi þeirra.
Skriflega umsókn um inngöngu í samtökin skal senda stjórn samtakanna.
4. gr.
Félagsgjöld einstaklinga ákveður aðalfundur. Gjalddagi árgjalda er 1. janúar ár hvert.
5. gr.
Aðalfundur kýs fimm konur í stjórn.Stjórnin skiptir með sér verkum. Þá kýs fundurinn tvo varamenn í stjórn, sem jafnan eru boðaðir á stjórnarfundi.
Formaður og stjórn hafa umboð til að álykta í nafni samtakanna enda sé ályktunin í samræmi við grundvallarmarkmið þess.
6. gr.
Aðalfund skal halda fyrir 15. nóvember ár hvert.
Á aðalfundi er samþykkt starfsáætlun til eins árs.
Allir skráðir félagar hafa rétt til setu og atkvæðisrétt á aðalfundi.
Stjórnin ber ábyrgð á fjárreiðum samtakanna.
  1. Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
    1. Fundur settur.
    2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
    3. Skýrsla ráðs fyrir liðið starfsár.
    4. Reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir.
    5. Kosning í stjórn.
    6. Kosning á skoðunaraðila reikninga.
    7. Ákvörðun félagsgjalda.
    8. Lagabreytingar.
    9. Tillaga stjórnar um starfsáætlun næsta starfsárs.
    10. Önnur mál.
    11. Fundarslit.
§ Aðalfundur telst löglega boðaður ef fundarboð er sent með tölvupósti á félaga með a.m.k. tíu daga fyrirvara.
2. Reikningsár félagsins er 1. október til 31. september.
7. gr.
Tillögur um breytingar á lögum ber stjórnin undir félaga á aðalfundinum. Aðalfundurinn samþykkir breytingar með 2/3 atkvæða.
Nýjustu fréttir
Fulltrúar fjölda...
Fréttatilkynning 16. ágúst 2010 Fulltrúar fjölda kvennasamtaka...
02.08.10
Taktu þátt 30+...
Samtök kvenna af erlendum uppruna luku sínu öðru „Taktu...
Reykjavík Safarí...
Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og...