Málefni:

Stjórn Samtaka beitir sér fyrir hagsmunum innflytjenda á ýmsum sviðum þjóðlífs, svo sem:  

Atvinna og félagsleg mál:

·         starfa að atvinnu- og félagsmálum í öllum landshlutum

·         vinna með og hafa áhrif á önnur samtök, stofnanir, og opinbera aðila við að tryggja félagslegt og fjárhagslegt jafnrétti á sem flestum sviðum samfélagsins

·         Eiga samstarf við erlend kvennasamtök

·         ýta undir og efla til átaka konur með ólíkan bakgrunn

·         nema burtu þröskulda sem hindra konurnar í að njóta tækifæra í samfélaginu; gera þeim kleift að taka þátt í opinberu og samfélagslegu starfi, þ.á.m. í viðskiptum

·         hvetja, upplýsa og efla konur af erlendum uppruna til þess að þær megi styðja fjölskyldur sínar á árangursríkan hátt á meðan þær eru að aðlagast samfélaginu

 Menntun:

·         beita sér fyrir greiðum aðgangi að námi í íslensku

·         berjast fyrir því að þjálfun og menntun kvenna af erlendu þjóðerni verði viðurkennd þannig að þeim verði fært að vinna við sérfræði sín og megi með því öðlast meiri sjálfsvirðingu og sterkari sjálfsmynd

·         hvetja og styðja konur af erlendum uppruna til að afla sér frekari menntunar

Kynbundið ofbeldi:

  • taka málstað kvenna sem orðið hafa fórnarlömb ofbeldis og fræða þær um rétt þeirra
  • efna til samvinnu við önnur samtök sem vinna gegn ofbeldi
  • leitast við að tryggja að þolendur séu ekki órétti beittar í þjóðfélaginu
Nýjustu fréttir
Fulltrúar fjölda...
Fréttatilkynning 16. ágúst 2010 Fulltrúar fjölda kvennasamtaka...
02.08.10
Taktu þátt 30+...
Samtök kvenna af erlendum uppruna luku sínu öðru „Taktu...
Reykjavík Safarí...
Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og...