Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð 24. október 2003. Hlutverk Samtakanna er að sameina, takast á við og ljá hagsmuna- og áhugamálum kvenna sem sest hafa að á Íslandi rödd. Markmið Samtakanna er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins.

Í forsvari fyrir Samtökin er stjórn sem kosin er árlega á aðalfundi og situr eitt ár í senn.

Í stjórn samtaka árið 2009/2010 sitja:

 

Sabine Leskopf, formaður
Netfang:
sabine@womeniniceland.is 

Sabine er frá Þýskalandi en hefur búið á Íslandi síðan 2000. Hún er framkvæmdastjóri hjá AUS (Alþjóðleg ungmennaskipti) og hefur verið í stjórn Samtakanna síðan 2004.

Tatjana Latinovic, varaformaður
Netfang:
tatjana@womeniniceland.is

Tatjana er frá Króatíu en hefur búið á Íslandi síðan 1994. Hún var meðal stofnenda Samtakanna og hefur verið formaður frá 2004. Tatjana situr í Innflytjendaráði og í stjórnum Kvennaathvarfs og Alþjóðahúss. Hún starfar í þróunardeild Össurar hf.

Joanna Ewa Dominiczak, gjaldkeri
Netfang:
joanna@womeniniceland.is

Joanna er frá Póllandi og hefur búið á Íslandi síðan 2004. Joanna kennir íslensku fyrir útlendinga og er nemandi í íslensku og kvikmyndafræði við HÍ. Joanna hefur verið í stjórn Samtakanna síðan 2007. 

Paola Cardenas, ritari                                                                                             Netfang: paola@womeniniceland.is

Paola kom fyrst til Íslands árið 1999 og er sálfræðingur að mennt. Undanfarin ár hefur hún starfað hjá Rauða kross Íslands en er núna í fæðingarorlofi. Paola tók sæti í stjórn Samtakana árið 2008.

María del Pilar Acosta
Netfang:
maria@womeniniceland.is

María fæddist í Kólumbíu en kóm til Íslands árið 1997. Hún starfar sem iðnaðarverkfræðingur hjá Parlogis í vörustjórnurnardeild. Maria del Pilar tók sæti í stjórn Samtakana 2008.

Barbara Kristvínsson, varastjórnarmaður
Netfang:
barbara@womeniniceland.is

Barbara hefur búið á Íslandi síðan 1991 og hefur starfað sem ráðgjafi fyrst í Miðstöð Nýbúa og svo í Alþjóðahúsi. Barbara er núna í námi sem félagsráðgjafi og hefur tekið sæti í stjórn Samtaka árið 2009.


Gentiana Collaku, varastjórnarmaður
Netfang: 
gentiana@womeniniceland.is

Gentiana er fædd í Albaníu og kom til landsins árið 2001. Gentiana er lögfræðingur að mennt en starfar nú sem verkefnisstjóri í innflytjendamálum hjá Rauða kross Íslands. Hún hefur verið virk í Samtökunum í nokkur ár en tók sæti í varastjórn 2008.  

Nýjustu fréttir
Fulltrúar fjölda...
Fréttatilkynning 16. ágúst 2010 Fulltrúar fjölda kvennasamtaka...
02.08.10
Taktu þátt 30+...
Samtök kvenna af erlendum uppruna luku sínu öðru „Taktu...
Reykjavík Safarí...
Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og...