Söguhringur kvenna

Söguhringurinn er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins Reykjavíkur og Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og er markmið hans að skapa vettvang þar sem konur af erlendum uppruna skiptast á sögum, persónulegum eða bókmenntalegum. Hann er ætlaður konum af erlendum og íslenskum uppruna sem hafa áhuga á frjálslegri samveru sem byggir meðal annars á því að konur deili menningarlegum bakgrunni sínum með öðrum. Í söguhringnum er tækifæri fyrir erlendar konur til að tjá sig á íslensku, æfa tungumálið og fræðast um íslenska menningu, bókmenntir og siði.


Söguhringur hefur reynst mjög gefandi og skapandi verkefni og er áætlað á nýju árinu að færa út kvíarnar og tengjast menningarlegum atburðum á virkan hátt.


Hópurinn er opinn bæði íslenskum og erlendum konum sem hittast í Borgarbókasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, Reykjavík, fyrsta sunnudag í mánuði kl. 15.00. Með umsjón Söguhringsins fara Kristínar R. Vilhjálmsdóttir og Paola Cardenas.

 

Nýjustu fréttir
Fulltrúar fjölda...
Fréttatilkynning 16. ágúst 2010 Fulltrúar fjölda kvennasamtaka...
02.08.10
Taktu þátt 30+...
Samtök kvenna af erlendum uppruna luku sínu öðru „Taktu...
Reykjavík Safarí...
Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og...