Fréttir
06.07.10
Reykjavík Safarí
Reykjavík Safarí...

Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og skemmtilegu staðirnir eru? Hvað er ókeypis? Hvað gerist um helgar? Hvað er fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna?

Fimmtudagskvöldið 8. júlí kl. 20 bjóða menningarstofnanir Reykjavíkurborgar til kvöldgöngu þar sem menningarlífið í miðborginni verður kynnt á fimm tungumálum: spænsku, ensku, pólsku, tælensku og litháísku.

Þátttakendur geta valið um leiðsögn á ofangreindum tungumálum, en hóparnir fimm hittast í lok göngunnar í Hafnarhúsinu þar sem boðið verður upp á hressingu. Etna Lupita Mastache, danskennari, mun sýna nokkur leikandi létt dansspor og þeir sem vilja geta tekið þátt.

Kvöldgöngur í hverfunum er samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Listasafns,
Ljósmyndasafns og Minjasafns Reykjavíkur. Lagt verður af stað frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 kl. 20 og tekur gangan um klukkustund en dagskránni í Hafnarhúsinu lýkur um kl. 22.

Þátttaka ókeypis og allir velkomnir!

Kvöldgöngur í hverfunum. Kynntu þér dagskrá sumarsins!

Nýjustu fréttir
Fulltrúar fjölda...
Fréttatilkynning 16. ágúst 2010 Fulltrúar fjölda kvennasamtaka...
02.08.10
Taktu þátt 30+...
Samtök kvenna af erlendum uppruna luku sínu öðru „Taktu...
Reykjavík Safarí...
Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og...